Betri vefir. Skýrari miðlun. Meiri árangur.

Ég hjálpa fyrirtækjum að þróa og halda utan um vefsíður og stafræna miðla - með skýra tengingu við markaðs- og viðskiptamarkmið til lengri tíma.

Heiðar Örn Arnarson
Heiðar Örn Arnarson, vef- og markaðsráðgjafi

VIRÐIÐ FYRIR ÞIG

Kannastu við þessi vandamál?

"Ég er alltaf á leiðinni að taka vefinn í gegn"

Lítil markaðs- eða IT deild, óskýr ábyrgð á vefsíðunni, verkefni dragast - tækifæri glatast.

Ég geng í verkin, stýri, skipulegg og framkvæmi.

Engin stefna og forgangsröðun

Engin stefna, mörg verkefni, enginn skýr vegvísir (roadmap).

Ég aðstoða við stefnumótun, greini þarfir og geri vegvísi.

"Lost in translation" á milli viðskipta og tækni

Þróunarteymi og viðskipta hliðin tala ekki sama tungumál.

Ég virka sem brú á milli aðila og vinnan verður skilvirkari.

"Ég veit ekki hvort vefurinn skili árangri" 

Engin innsýn í hvað virkar á vefnum og ákvarðanir teknar í myrkrinu.

Ég aðstoða við að taka gagnadrifnari ákvarðanir.

„Vefurinn er oft munaðarlaus og afskipt verkefni sem situr á hakanum — til að hann gefi sem mest virði þarf hann að vera lifandi vara sem þróast með rekstrinum.“

Þjónusta

Þrjár leiðir til að taka vefmálin þín í gegn:

Vefstjóri "á leigu"

Vefstjóri "leigður" fyrir umsaminn tíma. Sér um almennt viðhald og breytingar, sýnileika á leitarvélum, forgangsraðar verkefnum og sér um samskipti við vefstofu.

  • Almennt viðhald og breytingar
  • Efnisgerð, textar og myndir
  • Leitarvélabestun (SEO) Gervigreindarbestun (GEO)
  • Mælingar á árangri

Verð fer eftir umfangi sem við metum saman.

Vefúttekt & greining

Úttekt á núverandi vef, þarfagreining unnin. sett skýr stefna og framtíðarsýn fyrir núverandi vef / nýjan vef - með góðri tengingu á milli þjónustu, markaðsmála og tækni.

  • Hvað er gott og hvað er ábótavant?
  • Hvaða þörfum á vefurinn að mæta?
  • Forgangsröðun lykilverkefna (wireframe)
  • Kröfulýsing fyrir vefstofu
VERÐ FRÁ
159.000kr. + vsk

Við metum saman umfang fyrir endanlegt verð.

Hönnun og uppsetning

Hönnun og uppsetning einfaldra vefsíðna, notendaupplifun og efnisvinna sem tengir saman markaðsmál, þjónustu og tækni,

  • Hönnun og uppsetning
  • Efni; texti og myndir
  • Leitarvélabestun (SEO) Gervigreindarbestun (GEO)
  • Lén og hýsing
VERÐ FRÁ
249.000kr. + vsk

Verð fer eftir umfangi og þörfum verkefnis. Við metum saman fyrir endanlegt verð.

Isavia
Orkuveitan
ON
Veitur
Orkusalan
Sjúkratryggingar
Isavia
Orkuveitan
ON
Veitur
Orkusalan
Sjúkratryggingar

Reynsla

Reynsla beggja megin borðsins

Ég hef unnið við vef- og markaðsmál í um 18 ár á mörkum markaðsmála, stafrænnar þróunar og verkefnastýringar. Ég hef starfað í ýmsum geirum atvinnulífsins, á móti fjölda vef- og auglýsingaastofa en einnig starfað hugbúnaðarmegin.

  1. MarkaðsstjóriOrkusalan
  2. Verkefna- og viðskiptastjóriAdvania
  3. Sérfræðingur í stafrænni miðlunOrkuveita Reykjavíkur
  4. VefstjóriIsavia
  5. Vef- og kynningarfulltrúiTryggingastofnun / Sjúkratryggingar Íslands

Hafa samband

Eigum við að taka kaffispjall?

Tökum stöðuna og sjáum hvernig ég get hjálpað - án skuldbindinga.