Að vera drekinn, bölvun eða blessun?

Höfundur Heiðar Örn Arnarson
Markaðs- og vefráðgjafi
Í lok janúar lenti ég í þeirri óskemmtilegu reynslu að vera sagt upp í fyrsta skipti á mínum ferli. Eftir erfitt ár þurfti að grípa til margra uppsagna á mínum vinnustað. Ekki skemmtileg upplifun og því fylgir auðvitað kvíði, óöryggi og reiði.
En ég tók strax nokkrar ákvarðanir
- Skoða hvað mig raunverulega langar til að gera
- Hitta fólk úr tengslanetinu, kaffibollinn er meira en drykkur, hann er sameiningartákn
- Hugsa betur um sjálfan mig, hvíld, hreyfing, matarræði
- Sinna fjölskyldunni betur og því sem setið hafði á hakanum
Niðurstaðan
Ég veit betur hvað ég vil gera þegar ég verð stór. Markaðsmál hafa alltaf verið mér hugleikin og reynsla mín og menntun af annars vegar markaðsmálum og hins vegar vef- og hugbúnaðarmálum gefur frábæra synergíu.
Ég ákvað að vera aktívur á LinkedIn, kom prófílnum í betra stand og hafði samband við fólk, ekki endilega til að biðja um vinnu, heldur til að tala saman, deila, fræðast og tengjast. Fyrir utan allt peppið sem ég fékk bý ég nú að sterkari og auknum tengslum og mögulegum tækifærum sem það getur skapað í framtíðinni. Þetta var ekkert auðvelt fyrir intróvertinn mig og þurfti smá átak til að stíga út fyrir kassann.
Shout out á ykkur sem tókuð mér svona vel: Albert Þór Samkaup, Andreas Sahara, Anna Margrét Altso Herferð, Anna Signý Kolibri, Ásdís Icelandia, Birgir Digido, Breki og Rún Orkuveitan, Droplaug Blue lagoon, Einar Thor Finds, Elmar og Garðar Vettvangur, Emil Austmann BM vallá, Fridrik Larsen Brandr, Guðbjörg og Birgir Splendid, Gudbjorg Stefna, Guðrún Rue de net, Guðmundur Bjarni Júní, Haraldur Sigfús ON, Hildur Icelandair, Hjördís Elsa Indó, Hjalti Már Datera, Jóhanna Sjá, Lovísa Samorka, Magnus Bergsson, Magnus Peel, Mariam Wisefish, Markus Landsbankinn, Mitt besta Isavia fólk Gunnar, Gudni og Brynja Björk, Orri Norda, Ragnheiður Hugsmiðjan, Sigrún Ásta A4, Sigurjón Fúnksjón, Sveinn Laufey welcome center, Valeria Ljósleiðarinn, Þorgeir Ósar, Þórhildur Rún.
Ég mun hefja störf sem markaðsstjóri Orkusölunnar 1. júní
Ég bauð sjálfum mér í kaffi til þeirra í febrúar og ég er ekkert lítið spenntur enda kraftmikið fyrirtæki með vel skilgreint markaðsstarf og vörumerki. Leysi þar af tímabundið öfluga konu Helga M. Beck sem á von á erfingja. Takk fyrir traustið Heiða Halldórsdóttir!
Og síðast en ekki síst
Ég fékk að vera meira með fjölskyldunni, hreyfði mig og hugsaði um sjálfan mig. Staldraði við, komst í ró og gaf mér tíma, nokkuð stressfrír.
Frasar til að loka þessu
Ég geri ekki lítið úr áfallinu sem fylgir því að missa vinnuna. En það er með alla þessa frasa þarna úti, einhver byrjaði að flagga þeim af ástæðu, harkalega fallið og upprisan, lokuðu og opnu dyrnar, biskupinn sem var barinn, þið þekkið þetta.
Viltu taka spjallið? Sendu mér skilaboð á Linkedin
