Það getur haft afleiðingar að sinna ekki vefsíðunni sinni almennilega

Höfundur Heiðar Örn Arnarson
Markaðs- og vefráðgjafi
Vefurinn fer oft aftarlega á verkefnalistann hjá fyrirtækjum og stofnunum, á meðan daglegt amstrið tekur yfir.
Í rannsókn sem Google gerði kemur fram að 53% notenda yfirgefa vefsíðu í síma sem tekur meira en 3 sekúndur að hlaðast. Rannsókn Vistaprint sýnir líka að um 60% neytenda segjast ólíklegri til að versla hjá fyrirtæki eftir slæma upplifun á vefsíðu þess, 42% myndu ekki heimsækja eða versla af fyrirtæki með ófaglega vefsíðu, og tæp 29% taka ekki mark á vefsíðu ef hún hefur ekki verið uppfærð í 6 mánuði.
Lausnin er ekki endilega að gera nýjan vef frá grunni. Oftast vantar bara skýrari stefnu, forgangsröðun og einhvern sem heldur utan um verkefnið.
Hvernig gengur með vefsíðuna hjá ykkar fyrirtéki? Sendið endilega á mig línu ef þið viljið taka kaffi og spjalla um þetta!
Viltu taka spjallið? Sendu mér skilaboð á Linkedin
