Greinar
AI og markaðssetning·26. júní 2026·3 mín lestur

Þarf ég að endurhugsa efnið á vefnum mínum með tilkomu AI?

Heiðar Örn Arnarson

Höfundur Heiðar Örn Arnarson

Markaðs- og vefráðgjafi

Aukin notkun AI-botta við að afla upplýsinga um vörur og þjónustu gerir að verkum að heimsóknir á vefsíður eru að fækka. Þetta snýst því um að auka líkur á að bottarnir þekki fyrirtækið þitt og þjónustuna þína, ekki heimsóknir per se.

En hvernig get ég aukið líkurnar á að það gerist? Það þarf ekki að umturna hlutum ef þín síða og efni hafa skorað hátt í Google leit, en vert er að hafa nokkra hluti í huga:

  • Hugsaðu efni út frá því að þú sért að svara spurningum fólks, ekki flækja hlutina með of miklu efni, minna og skýrara er meira í þessu tilviki.
  • Komdu á framfæri aðgreiningu vöru eða sérfræðiþekkingu þinni með dæmum. Of almennt orðalag aðgreinir þig ekki frá fjöldanum.
  • Reyndu að miðla efni eða svara spurningum sem fáir aðrir hafa gert. Of almennt orðalag á tilteknu fagi fær þig ekki til að skera þig úr fjöldanum.
  • Notaðu algengar spurningar og svör (FAQ) á síðunni þinni og bættu við svokallað „schema markup“ í kóðann á síðunni, annað hvort sjálf/ur eða láttu þinn þjónustuaðila græja. Það hjálpar bottanum að vísa í FAQ-efnið.

Með þetta að leiðarljósi ættu möguleikar að aukast verulega.

Viltu taka spjallið? Sendu mér skilaboð á Linkedin

Hafa samband

Eigum við að taka kaffispjall?

Tökum stöðuna og sjáum hvernig ég get hjálpað, án skuldbindinga.