Greinar
Fréttir·15. júní 2026·2 mín lestur

Að hella sér í markaðs- og vefráðgjöfina...

Heiðar Örn Arnarson

Höfundur Heiðar Örn Arnarson

Markaðs- og vefráðgjafi

Eftir mörg ár í stafrænum verkefnum, markaðsmálum og veflausnum hef ég ákveðið að stíga skrefið og hefja starfsemi sem sjálfstætt starfandi vefráðgjafi.

Vefurinn er stærsti snertiflöturinn við viðskiptavini og hefur bein áhrif á traust, ákvarðanir og tekjur. Þrátt fyrir þetta hef ég ítrekað séð á mínum ferli að mörg fyrirtæki og stofnanir vanmeta vefinn sinn og vita að hann gæti verið betri. Sem dæmi þá er nauðsynlegt að uppfæra efni, bæta upplifun notenda, huga að leitarvélabestun og endurskoða stefnu og forgangsröðun.

Fólk staldrar við, viðurkennir þetta fyrir sér og öðrum. En heldur svo áfram að moka skurðinn í sínu daglega amstri.

Þar kem ég inn

Stundum sem vefstjóri á leigu. Stundum sem ráðgjafi sem hjálpar til við að greina stöðuna, setja skýra stefnu og koma verkefnum af stað, og stundum kem ég einfaldlega inn sem glöggt gestsauga sem sér tækifæri þegar vefurinn er of nálægt fólki.

Ég er spenntur fyrir þessari vegferð og hlakka til að hjálpa fyrirtækjum að fá meira út úr sínum stafrænu snertiflötum.

Viltu taka spjallið? Sendu mér skilaboð á Linkedin

Hafa samband

Eigum við að taka kaffispjall?

Tökum stöðuna og sjáum hvernig ég get hjálpað, án skuldbindinga.