Hvað ég lærði hjá Advania

Höfundur Heiðar Örn Arnarson
Markaðs- og vefráðgjafi
Um daginn lauk ég störfum hjá Advania eftir rúmlega ár í starfi þar sem ég verkefnastýrði innleiðingum og rekstri vefverslana hjá viðskiptavinum.
Ég er búinn að vera að hugsa hvernig ég get sett þennan tíma í orð, hvað ég lærði, og hvernig gerði það mig að hæfari sérfræðingi. Hér er einhver tilraun til þess:
Aukin reynsla og víðari sýn
Hafandi verið hinu megin við borðið, að þiggja þjónustu frá vefstofum allan minn feril, hef ég núna aukinn skilning á hvað það er sem tikkar hjá öflugri vefstofu. Er því núna með í bankanum bæði hlutverk að vera þjónustuaðili og viðskiptavinur.
Kröfur viðskiptavina og vænt virði
Vinnubrögðin, viðskiptamódelið, harkann við að selja út tímana sína. Um leið áskorunin að viðskiptavinir upplifi framúrskarandi þjónustu og skilji og upplifi virði vinnunnar sem greitt er fyrir. Reynslan af þessu ári sýnir að upplifað virði er mjög oft ekki í samræmi við vinnuna sem er á bak við lausnanna. Fyrir því geta verið ótal ástæður, oft skipulagslegar en ekki síður mannlegar, á báða bóga, það er að segja tengt viðskiptavinum og þjónustuaðilum. Áskorunin er að ná að vera einu skrefi á undan og átta sig á rauðu flöggunum. Hugbúnaðargerð er mjög flókin skepna og er ekki hilluvara sem þú kaupir út í búð eins og skór eða pepsi dós!
Þjónusta og sala
Og áfram á þessum nótum. Ég hef alltaf lagt mig fram um að veita góða þjónustu í mínum störfum. Hins vegar lærði maður ýmislegt nýtt varðandi það markmið að veita framúrskarandi þjónustu, en líka grunn vinnubrögð í sölumennsku, sem maður býr nú að. Setja sig í spor viðskiptavinarins, hver eru sársaukapunktar hans, en einnig hvernig manngerðir maður er að fást við, hvað er það sem tikkar hjá þeim og að endingu hvernig getur maður uppfyllt þarfir hans og fengið margínu inn í fyrirtækið.
Magnaðir sérfræðingar
Ég fékk tækifæri á að vinna með miklum snillingum, sérfræðingar með ótrúlega hæfileika þar sem þeir leika sér að kóðanum og finna lausnir við flestum vandamálum. Með sérstaklega frjótt hugmyndaflug sem ýtir fólki áfram og kemur viðskiptavinum í samkeppnisforskot. My hat's off for you guys! You made me look good. Þið vitið hverjir þið eruð.
Uppgangur vefverslana
Eins og ég hef áður komið inn á á þessum vettvangi er uppgangur vefverslana búinn að vera gríðarlegur og ljóst að þú stofnar ekki fyrirtæki í dag án þess að huga að því hvernig þú selur vöruna þína á netinu. Flækjustig innleiðinga er misjafnt og fer eftir stærð og vöruframboði fyrirtækja, tengingum við viðskiptakerfi, greiðslumiðlun ofl. Á þessum stutta tíma fékk ég stórar innleiðingar í fangið hjá stórum fyrirtækjum með nóg af flækjum. Oft mjög þungt en þeim mun ánægjulegra þegar takmarkinu var náð og útkoman alls ekki slæm!
Viltu taka spjallið? Sendu mér skilaboð á Linkedin
