Hvaða vefsíður eru að fara að lifa AI byltinguna af?

Höfundur Heiðar Örn Arnarson
Markaðs- og vefráðgjafi
Það er klárt að AI mun ekki drepa vefsíðuna sem slíka. En AI er að breyta því hvernig hún er notuð.
Fólk er sífellt meira að fara fyrst inn á AI-botta eins og ChatGPT, Claude eða Gemini til að leita upplýsinga eða að vöru og þjónustu.
Þá þurfa vefeigendur sífellt meira að hætta að spyrja sig: „Hvernig fæ ég sem flestar heimsóknir inn á síðuna mína?“ yfir í „Hvernig fæ ég AI til að skilja hvað fyrirtækið mitt gerir og vísa í upplýsingar frá vefnum mínum?“
En hvaða týpur af vefsíðum eru líklegri en aðrar til að lifa af?
Vefsíður sem eru að fara að lifa ágætu lífi
- Netverslanir
- Bókunarkerfi
- Þjónustuvefir (Mínar síður)
- SaaS-vefir (vefir sem selja hugbúnað beint í gegnum netið)
- Sérfræði- og þekkingarvefir (source of truth vefir með sérstöðu)
Vefir sem missa mikilvægi
Vefir sem missa mikilvægi eru vefir sem vilja fá notendurinn á vefinn til að lesa og smella, ekki til að framkvæma aðgerð eða leita sér dýpri þekkingar:
- Bloggvefir
- Um okkur- efnisvefir / auglýsingavefir sem kynna fyrirtækið
AI mun ekki drepa vefinn. En það mun taka upplýsingahlutverkið af honum og vefir sem hafa ekkert annað hlutverk en að fá smell, munu eiga undir högg að sækja.
Viltu taka spjallið? Sendu mér skilaboð á Linkedin
