Greinar
Markaðssetning·18. febrúar 2026·4 mín lestur

Hvernig markaðssetur maður óáþreifanlega nauðsynjavöru eins og rafmagn?

Heiðar Örn Arnarson

Höfundur Heiðar Örn Arnarson

Markaðs- og vefráðgjafi

Í vikunni hélt ég kynningu á mínum vinnustað Orkusalan þar sem við í markaðsteyminu fórum yfir árangur og verkefni síðasta árs. Þar kom ég m.a. inn á áskorunina að markaðssetja óáþreifanlega nauðsynjavöru, rafmagnið, sem við tökum öll dálítið sem gefnu og spáum ekki mikið í.

Áskoranirnar

  • Varan er óáþreifanleg
  • Hún er eins hjá öllum, óháð því hver selur
  • Hún er sjaldan ofarlega í huga fólks
  • Tregða við að skipta, fólk skiptir örsjaldan um raforkusala
  • Verðmunur er lítill

Hér er ekki verið að selja vöru per se. Heldur að selja traust, einfaldleika og tilfinningu. Aðgreining á markaði þarf að tengjast upplifun á vörumerki og þjónustu.

Nokkrir hlutir sem ég hef lært af því að markaðssetja vöru á einsleitum markaði eins og raforkumarkaðinum

  • Ef þú talar bara um eiginleika, ertu eingöngu að keppa í verðum
  • Ef fólk nemur engan mun á upplifun á vörumerkinu, skiptir það ekki um raforkusala
  • Ef þú nærð ekki að vinna bug á tregðunni á markaðnum, skilar aukin vitund litlu
  • Það er sífellt erfiðara að ná athygli fólks, ekki síst á þessum markaði.

Markaðssetning á einsleitum markaði snýst ekki um að öskra hæst. Hún snýst um að byggja upp hughrif þannig að ákjósanleg merking sé til staðar í huga fólks þegar þörfin myndist.

Fyrir þau sem eru að markaðssetja „óspennandi" vörur

Það er ekki varan sem er óspennandi heldur mögulega sagan sem þú ert búin að vera að segja.

Gettu hver raforkusalinn er!

Ég lét gervigreindina greina 4 vefi raforkusala og hleðslufyrirtækja og bað hana að búa til karakter sem hún skilgreinir út frá tón vörumerkjanna Orka náttúrunnar (ON Power), HS Orku, Orkusölu og Ísorku. Getið þið giskað hvaða mynd er hvað?

Fjórir AI-myndaðir karakterar fyrir raforkusala: Orka náttúrunnar / ON Power, HS Orka, Orkusalan og Ísorka
Gettu hver raforkusalinn er! (Orka náttúrunnar / ON Power, HS Orka, Orkusalan, Ísorka)

Viltu taka spjallið? Sendu mér skilaboð á Linkedin

Hafa samband

Eigum við að taka kaffispjall?

Tökum stöðuna og sjáum hvernig ég get hjálpað, án skuldbindinga.