Vefsíður sem einfaldlega gefast ekki tími til að sinna

Höfundur Heiðar Örn Arnarson
Markaðs- og vefráðgjafi
Aftur og aftur hef ég séð vefsíður sem einfaldlega gefst ekki tími til að sinna, oft munaðarlausar, efnið leysir ekki vandamál notandans nægilega vel og svo framvegis. Það þýðir samt ekki endilega að vefsíðan sé slæm.
Atriði og frasar sem ég hef heyrt ótal sinnum:
- Ég er búinn að ætla að taka vefinn í gegn mjög lengi
- Efnið er orðið úrelt
- Litlar breytingar safnast upp og verða að stóru verkefni
- Óljóst hver ber ábyrgð á vefnum
- Efni kemur ekki upp í leitarvélum eða AI-chatti
- Ég veit ekki hvort vefurinn skili árangri fyrir reksturinn minn
Það fjallar ekki endilega um að það þurfi að henda vefnum og gera nýjan, heldur þarf einhvern sem tekur utan um hann, mögulega þarf hann stefnu, betra skipulag, setja fókus á aðalatriðin, koma hlutunum í kerfi og keyra verkefnin áfram.
Vefurinn er of mikilvægur og of stór fjárfesting til að hann sé látinn sitja á hakanum ár eftir ár. Hann þarf að vera lifandi miðill sem styður við fyrirtækið alla daga.
Þetta er ein af ástæðum þess að mig langaði að bjóða upp á vef- og markaðsráðgjöf.
Það væri áhugavert að vita ef þið tengið við eitthvað af þessum atriðum?
Viltu taka spjallið? Sendu mér skilaboð á Linkedin
